Litlir Hraðbrautlingar blogga...

Bekkur Bekkjanna

13.07.2007 23:42:15 / *Tinna*

útskrifuð!! :D

Jæja krakkar ég veit ekki hversu margir koma ennþá hingað inn en nú erum við ÚTSKRIFUÐ!! Ég veit ekki með ykkur en mér finnst svo svakalega stutt síðan við byrjuðum en samt svo mikið búið að gerast! :) Mér finnst svo stutt síðan ég kom fyrst inní skólann og núna 2 árum seinna er ég farin að hlakka til þess að byrja í Háskóla. Svo er alveg ótrúlegt að hugsa um allt sem hefur gerst á þessum tima og þetta virðist vera svo langur tími en samt svo lítill og svo fljótur að líða. En jæja þá er ég búin að segja það sem segja þurfti ;) see you around :) Gangi ykkur öllum vel með það sem þið ætlið að taka ykkur fyrir hendur :) Kv Tinna sín

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 15:35:02 / Sigrún

Jólaskreytingarkeppni

Jóla- hvað?

HallóHalló

Bara 4 dagar eftir af þessum blessaða skóla okkar (plús 2 próf)..

KRAKKAR :: ÆTLUM AÐ BYRJA AÐ SKREYTA EFTIR SKÓLA Í DAG OG ÆTLUM AÐ KLÁRA ÞETTA Á MORGUN.  ÖLL HJÁLP VEL ÞEGIN =D

Allir að leggja 300kr inná reikning 0327-26-008928, kt. 131289-2869 fyrir jólaseríum og jólaskrauti.  Lofum að passa peninginn ykkar mjög vel.

Ætlum að hafa þetta rosarosa flott og rústa þessarri keppni !!

-sigrúnósk.. ;*

.


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 10:50:36 / lullio89

jeijjjjj

já nú er ég sko kominn heim af spítalanum og virðist vera að leggja þessa síðu undir mig

kommon einhver annar að blogg hérna....

allaveganna.. til að draga saman viðburði síðustu daga og næstkomandi er þetta svona í stuttu máli..

í gær kom ég heim af spítalanum en fór þangað tvisvar sinnum yfir daginn til að fá helvítis lyfið... fór síðan heim um 10 leytið til að fara að sofa... svaf ekki rassgat mér var svo illt í maganum fór fram um hálf fjögurleytið og horfði á eftir kvöldmatnum fljúga í klósettið, svaf reyndar betur eftir það...

í dag fór ég í skólann og mér er pínu illt í maganum en það reddast. vonandi. og ætla mér heim á eftir að klára verkefnin mín og slappa af og reyna að sofa eitthvað

á morgun er skóli en ég fer í röntgen eða eitthvað svoleiðis til að athuga hvort ég sé ennþá veikur. og æfing um kvöldið

á miðvikudaginn ætla ég að keppa um kvöldið og annars er ekkert planað hjá mér í bráðinni. fyrir utan að lifa með þessum hausverk...

Adios... veit etta var ekki skemmtileg færsla en svona er það bara... they're not all winners  

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2006 01:25:10 / lullio89

HAHA summary

núna ligg ég eins og sama skata og kata flata og þó ég hjól gata og ....????? hvað í fjandanum var þetta nú er ég komin með brunasár á puttan eftir hjólastólarall við hjalta Þórðarsson... fínn gaur... hann vann hefðir mátt leyfa mér að vinna... það er ég sem er veikur... hehe djok fór og leigði mér spólu og keypti mér slatta af nammi og svona... so horfði ég á myndina og fór svo að leika mér einn á hjólastól.... doldið erfitt en geggt gaman... mæli með að allir fái sér hjólastól.. ég er búin að prófa þannig ég þarf ekki að kaupa mér :p en nú þarf ég að fara að gera helvítis djöfulsins verkefnið í stærðfræði... nenni því ekki en ég er farinn að sofa... en hugsa um það að vera kominn í mitt eigið rúm á morgun.... Damn nenni ekki heim hin veiki Ísleifur kveður og vonast til að verða góður... semsagt heill heilsu... Bæ

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 19:12:48 / lullio89

það er komið

já það er sko aldeilis komið á hreint... strákurinn í hvítu buxunum... ég veit hver það er... Hann ber nafnið Rafn eða eikka álíka skrýtið nafn... hann gengur oft um í liverpool bol og þykist geta eitthvað í íþróttum... sem er rugl því enginn sem flaggar því að hann sé Liverpool aðdáandi og getur eitthvað í Íþróttum... en stattu fastur í trú þinni um að þeir geti eitthvað... ég Styð Liverpool og get ekkert í Íþróttum... eina ástæðan fyrir því að ég skrifi er sú að ég sit á rassgatinu og er að leika mér á hlaupahjóli inná Barnaspítala Hringsins

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 17:24:53 / lullio89

lullio89 heitir ísleifur :o

já... nú er ég í gúddí fýling á Barna spítala hringsins og mér skilst að ég sé elstur... held að svo sé ekki lengur í gær þegar ég var lagður inn þá var mér sagt að sá næstelsti hafi verið 9 ára... :S það var samt fínt því ég var þreyttur og fór að sofa 7 klukkustundum síðar... æjj bíddu... þess vegna er ég ennþá þreyttur... úps

en ég ætla að tala um dvöl mína... (mamma heldur að ég sé að læra) ég ligg í rúminu fæ lyf og mamma kemur að sækja mig og við förum að tjilla (vinna) og ég gat því miður ekki verið með á æfingu í dag en ég horfði á. svo kom ég aftur klukkan fjögur og hét því að fara að læra og náði næstum að standa við það... varð að komast í sturtu. fór í sturtu og gvöð hvað mér líður vel eftir hana. ekkert smá þægilegt að vera á spítala og vera nokkuð frjáls um ferðir en þarf bara að vera inni á stofunni minn klukkan 4 um miðjan dag og hálf níu um morgun og meðan ég er sofandi... það kemur einhver þá og sprautar sjitti í mig. ógeðslega kalt drasl þegar etta er komið í æðina. en ég er svo harður að ég kvarta ekki. ég má leika mér á hlaupahjóli svo lengi sem ég slasa engann... þess vegna má ég ekki vera á því lengur því ég negldi næstum því niður eina hjúkkuna í gærkvöldi um hálftvö leitið. Híhí gaman hjá mér... ég þarf reyndar að fara einhverja 700 metra ef ég ætla í hraðbanka og það einhvern ógeðslega langan gang... tíu sekúndur á leiðinni til baka... hann hallar svo mikið...

annars geðveikt að vera hérna og allir í kringum mig í góðu skapi... meira að segja tveggja ára sköllótt börn... þau eru æðisleg þessu litlu kríli.

fyrir þá sem eru að pæla í því þá er ég hérna að því ég reyndi að drepa mig

djók... þetta var ljótt... en samt tilvitnun í tvíhöfða... ég er með ennis- og kinnholubólgu og er á einhverjum ofursýklalyfjum því önnur hreinlega virka ekki...

þannig er það... bið að heilsa.... Elska ykkur... Öll


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 22:59:32 / Maríanna

Já þannig var það;)

Nei Belssuð veriði ;) nei annars fyrst ég segi blessuð veriði þá er ég að biðja guð um að blessa ykkur samkvæmt Bjarka... hmmm ætlaði nú ekki að gera það...;) haha ;)

Hvernig gekk fólkinu svo í prófunum?

En Helvítis beiglur eruði að koma ekki í próflokaferðina!! Helvístis lúðar;P Nei annars;) það var ekkert smá gaman þótt að það mætti ekki drekka:D hohohoho fyrir mig:D hnéhnéhné;) neinei það var farið í singstar:D nei annars, BRYNDÍS elskulega henti sjónvarpinu í gólfið.....:haha: hnéhnéhné :klikk: en við vorum að syngja og svo kom löggan og hennti öllum út því að það fannst vodka peli á Maríu Kennara og þá vorum við bara úti og fórum niður á strönd og fundum Svövu! hún var að leita að skeljum:D awww Svava Krútt.... svo allt í einu þá heyrum við í Svövu : "Krakkar!! ég fann Fisk sem er húðlitaður og ýkt stór!!!!" og hún var svo ánægð..... ussss allavegana þá hlupu náttúrulega aallir krakkarnir að Svövu og Obbobbb obbb! þegar við komum til hennar þá sáum við að hún var ekkii að tosa í fisk, neiiiii... aldeilis ekki. Þetta var hún Helga, en hún hafði dottið í fjörunni og legið þar í klukkutíma áður en Svava ákvað að hún var fiskur og tosaði "fiskinn" sinn upp. jæja allt í lagið með það og þá kom Tommi og var hann ekki bara búinn að brjótast inn í krikjuna og handtaka prestinn sem var bara að gefa dúfunum sínum í kirkjugariðnum! hann ætlaði nefnilega að vera Rosaega sniðugur og halda partý í kirkjunni... jæja krökkunum fannst þetta ekkert rosalega sniðug hugmynd en allir voru sammála um það að betra væri nú að vera í kirkjunni að "Djamma" eins og Sigrún og Sif vildu kalla þetta í staðinn fyrir að vera í fjörunni. það varð úr að Hraðbrautarfólkið skundaði í krikjuna og kom hann gísli með Tónlistina. þetta voru fallegir kirkjusöngvar sem hann strippaði við uppi á altarinu. Þetta fannst Aþenu og Önnu guðlast þannig að bryndís ákvað að stökkva á hann og rífa af honum skinnið (allavega sagði hún það við okkur) en þetta leit út eins og hún hafi barasta verið spólgröð konugreyið. En þá hrópaði Gísli : "DJÖFLADÝRKANDI" á meðan hann benti á Bryndisi og ætlaði að bíta eyrað að henni. já svona er hann ..... Sveitamaðurinn veit ekki að það er bannað að bíta af fólki eyrum þótt að eyrum á lömbum séu götuð og rifin og lituð!! Gísli, Menn og lömb eru ekki það sama:( þetta gengur ekki lengur. en jæja svo kom baddi í sínum æðislega Súperhetjubúningi! og hann varð alveg brjálaður og hoppaði út um glugga kirkjunnar. þá brotnuðu gluggarnir af því að baddi er ekki eins ósýnilegur og hann sagðist vera. þá þurftu Sigrún og Sif að fara að týna upp glerbrotin. allir fóru að gráta:( gler í húsi Drottins voru brotin og utanaðkomandi árás var í aðsigi. Ekkert heyrirst. Alveg Hljótt er í kirkjunni. þá fer Svava að syngja I'm not a girl, not yet a woman...... All I need is time, a moment that is mine... while I am between.... en eitthvað ruglar hún nú textanum og syngur: I'm not al pearl, Now get wúwú-man. All I feed is Baddi, a mum that is fine, while æjhh ..eeeeem.. Bede.... já.. þannig að núna fer Helga að leiðrétta Svövu og syngur þetta á íslensku ":I love to Tott a girl.... No yakk goes to whailraiders, All I need is fine..... a memmory that is rememmerable... while I am still Drinking...:!: tjahh þið hefðuð átt að sjá svipinn á badda og Tomma..hann var alveg8| og Sif og Sigrún þær voru bara eitthvað :haha::haha::haha: en þá varð Svava reið, og sagði við Gísla að hann ætti að fara og sækja Lúsífer til þess að láta Badda og Tomma og Sigrúnu og Sif í Glas! jjájá... þetta sagði hann... Ég held samt að Svövu hafi bara langað að fara í andaglas og nýtt sér þetta tækifæri til að reyna að fá fólkið í andaglas... áður um kvöldið vildi nefninlega enginn fara í andaglas því að Svava var alltaf að setja lak yfir fótinn sinn og bleikann varalit á augun sín, þannig að allir urðu Hræddir.! pffff Svava hefðir ekki átt að hræða fólkið..

en jæja ég ætla að fara hjálpa Steindóri og Veru og Gísla og Köru við fallið í íslensku..... en ég segi bara gangi ykkur vel með prófið á föstudeginum....:)

-Maríanna


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 14:07:25 / Sigrún

Glænýtt og ferskt blogg

Hallóhallóhallóhalló.. (þetta síðasta var bara fyrir Ísleif!!)

 

 



Svava og Baddi eru að rífast.. og núna er Baddi að gera sogblett á Svövu.  Baddi þó!  Svava er alveg craazy og slökkti á tölvunni.  Henni finnst þetta dónalegt hjá okkur.

 

 



2 próf búin og við ákváðum að fara í bloggkeppni við litla, wannabe a-bekkinn; http://blog.central.is/gradbraut.  EKKI kíkja á síðuna þeirra.  Haldið frekar áfram að koma hingað.

 

 



Við erum með smá slúður til ykkar:

Heyrst hefur að ákveðinn gelgjustrákur úr smábaddnabekknum sé player?! Já, þið heyrðuð rétt.. Þessi aðili var efst á Svartalistanum á Busadaginn og er þekktur sem “Strákurinn í hvítu buxunum”.  Enn hefur ekki verið staðfest nafnið á blessuðum drengnum en hann á að hafa haft tvær í takinu í umdeildri bústaðarferð.  Kannski maður ætti að fara að siða þessa krakka til. 

Hvar var ábyrgðarmaðurinn í þessarri ferð?!  Hvurslags foreldrar senda börnin sín í svona svakalegt kynsvall?

Ráðgátan er enn óleyst en Maríanna Mad-Woman og Ísi-Iceman halda áfram rannsókn málsins.

 

 



Áfram með smjörið... það er ekki rétt að tala svona mikið um smáböddn á þessarri fáguðu síðu okkar.  Núna rétt í þessu voru Ísleifur og Bjarni Snær að ákveða að fara saman inná klósett.  Kannski þeir toppi 3 mínúturnar hjá þeim Svövu og Baldri?  Þeim tókst allaveganna að gera Svövu reiða... Hún fór inn að læra... HVAÐ Á ÞETTA AÐ ÞÝÐA?!!

 

 



ÞAÐ ER KOMIN NÝ KAFFIVÉL... alveg heitasta slúðrið. Það komu tveir Tjokkó-gæjar hérna í morgun og settu upp þessa hrikalega kynþokkafullu kaffivél hérna.

 

 



Maríanna er lúði.  Vissuði það?  Hún ætlaði að vera svaka nett á því, en henni tókst að detta á bossann þegar hún steig niður af eyjunni.  Á BOSSANN!

 

 



Baddi er sofnaður svo við segjum þetta gott í bili, litlu sveittu kynþokkafullu lesendur.

 

 



Kveðja;

            Sigrún, Baddi, Maríanna, Ísi og Svava!


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 14:22:46 / Sigrún

...

Hey.. hverjir eiga myspace?  Skrifið í comment

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 10:40:00 / Sigrún

Sumarbústaðarferðin

X-Bekkurinn og aðrir valdir einstaklingar kíktu í bústað um helgina.. Þetta var eiginlega meiri hluti gamla a-bekkjarins ásamt; Aroni, Badda, Tómasi og Hadda ... ef ég er að muna þetta rétt.  Meiri hlutinn gisti en það voru samt 5 manns sem fóru heim strax á föstudagskvöldinu.  Ég, Aron og Sif komum soldið seint.. ætluðum að leggja af stað kl 23, en það varð ekki úr því fyrr en rúmlega hálf eitt.  Daginn eftir leið okkur svo obboslega vel, ehemm... þannig við ákváðum nokkur að vera aðra nótt.  Baddi, Svava, Aron, Haddi, Maríanna, Helga, Sif og ég.  Aron náði líka í Viktor í bæinn.. en þetta var víst afmælisdjammið hans (hann vissi ekki af því að hann væri að fara í bústað).  Skemmtum okkur held ég bara öll mjög vel :-)

Verðum að gera þetta aftur við tækifæri :-)

Nokkrar myndir:
 
Sif og Aron a leiðinni (skritinn svipur -> :P)
 
Haha.. :-)
 
Viktor og Aron i Singstar (jeg a upptöku af þessu.. hun kemur inn braðlega)
 
Svava sæta og svo Haddi, Helga, Viktor og Aron i Singstar.. sjaið svipinn a Aroni!!
 
Jeg bara varð... hahaha!
 
Svava&Baddi <-- ooog --> folk i singstar
 
 
** I pottinum **
 
Baddi - Svava - Svava
** Stelpurnar **
(Silja og Kristin voru farnar þegar eg, Sif og Aron mættum)
Gjössovel ;**
-Sigrún ;*

» 5 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 19:35:11 / lullio89

Kominn tími til

Já nú er sko aldeilis kominn tími til að blogga á þessa síðu fyrrum besta bekkjar heims sem innihélt aldeilis frábært fólk... og Maríönnu :S.

En ég (eða ölluheldur hugmyndin hennar Tinnu) var að pæla í að gamli A bekkur hraðbrautar ætti nú að drullast til að fara að gera eikka af viti eins og keila eða eitthvað álíka frumlegt... ég er sko aldeilis ekki að tala einungis um þá sem eru ennþá í skólanum heldur einnig Röggu, Röggu, Unni, Stafanýju (er etta rétt skrifað) og sorry ef ég er að gleyma einhverjum vonandi er sá einstaklingur ekki móðgaður

Kveðja Ísleifur hinn klisjukenndi

e.s. endilega kommenta (fínt dæmi um klisju, afhverju segja þetta nánast allir)

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 23:03:50 / Unnur

This is goodbye

jæja elsku krúttlegu bestu bekkjarsystkini í heimi.. Þetta er víst kveðju blogg :$  Ég er víst að yfirgefa ykkur :( ég ákvað það um helgina að Hraðbraut er ekki málið fyrir mig.. Ég mun þess vegna ekki vera með ykkur næstu lotu og enga aðra lotu.. Ég á eftir að sakna ykkar allra ýkt mikið.. og núna er kannski rétti tíminn til þess að segja ykkur frá því að ég komst að því um daginn að neanderdals mennirnir voru ekki samkynhneigðir.. þessi ritgerð sem ég studdist við í fyrsta sögutímanum í sögu 103 var víst um einhverja afríska górillu tegund sem er útdauð :P ég mundi þetta eitthvað aðeins á ská :^)  Vildi bara leiðrétta skilmisinginn ;) en jæja.. það er þá ekki mikið fleira.. ég er með ykkur flest inná msn og þið sem eruð ekki inná hjá mér meigið endilega adda mér unnza@hotmail.com er addressan :| og svo vitið þið bara hvar ég vinn..

Luvy´all

Kv. Unnur :$

E.s.   Þið eruð besti bekkur ever ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 14:16:37 / *Tinna*

Komið þið sæl og blessuð

Jæja krakkar mínir þá styttist í að síðasta lotan byrji..  þ.e. fyrir sumarfrí og það er síðasta lotan okkar saman sem abekkur, reyndar er það bara siðasta lotan okkar sem bekkur yfir höfuð þar sem við munum sitja öll saman í tíma og hlusta á sama kennarann segja það sama við okkur á næsta ári mun okkur vera skipt upp í 2 ef ekki 3 bekki :S hversu hræðilegt er það... :S ég mun tildæmis ekki geta setið við hliðina á henni Veru minni aftur í tíma :( eða peppað Steindór upp og hjálpað honum að vera ekki svona neikvæður í þýsku.. :(
Sigrún ætlar að fara á náttúrufræðibraut og svo eru Ragga og Sif að fara frá okkur hversu hræðilegt er það!!

Ég mun þó hafa ykkur sem ætlið á málbraut.. en :cry: æjj nú þurfum við að fara að gera eitthvað í því að gera eitthvað saman!!!

Gerum eitthvað í þessu öllu saman og gerum eitthvað

saman bekkurinn!! Finnum einhverja

helgi og förum öll saman í keilu eða bíó eða bara

eitthvað og gerum eitthvað skemmtilegt!!! 

Hverjir eru game??

Endilega kommentið hverjir eru game og vilja gera eitthvað og ef þið eruð með einhverjar hugmyndir.. :D

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 23:09:01 / Steindór

Árshátíðin

Jæja, seinustu helgi var árshátíðin okkar. Ég skemmti mér konunglega og var þetta allt saman mjög vel heppnað, á nemendaráðið hrós skilið fyrir hátíðina.

Ég vil óska þeim sem hlutu viðurkenningar á árshátíðinni innilegra óska. Þar sérstaklega Röggu S og Tinnu fyrir árangurinn í söngkeppninni og Hafdísi, Köru, Röggu S, Steffy og Svövu fyrir titlana í kostningunum.


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 14:10:12 / *Tinna*

árshátíð í kvöld!!!

Dagurinn í dag er merksdagur.. :D jeijj gaman gaman, árshátíð hraðbrautar hehe allir ógeðslega hissa :D haha, nei ég ákvað að skella inn einu bloggi eða svo þar sem ég hef ekki alveg verið fyrirmyndar bloggari á þessari síðu, já en eins og þið öll ættuð nú að vita þá er árshátið/söngvakeppni hraðbrautar í kvöld og ég hlakka alveg ógeðslega mikið til, er reyndar líka soldið stressuð, en það fylgir.. já þetta verður alveg ógeðslega gaman,

í fyrradag fórum við Vera og leigðum okkur þessa líka fínu kjóla... :D
já og svo er bara stefnan tekin á árshátíðina.. :D:D gaman gaman í fínum kjól og háum hælum.. hehe sé samt fram á það að þurfa að labba heim til Veru í háu hælunum mínum.. :S en ég mun bjargast.. :D ííí spenningurinn er að poppa upp í mér allt í einu dagurinn hefur verið heldur rólegur en allt í einu get ég ekki lengur setið kjurr... hehe váá, jæja en ég ætla að fara að gera eitthvað gáfulegt eins og ekki að læra af því að ég náði í sögu og í þýsku.. :D og meira að segja með príðiseinkunnir.. :D og svo er bara að krossleggja fingurna og vona að Jón Arnar hati mig ekki og felli mig :D nei nei hann gerir það ekkert.. or ells Tinna will get crazy!!! hehe haldið þið ekki að hann muni verða hræddur við mig.. hehe :$ :D en já I out:* sjáumst hress í kveld..drengir og stúlkur.. :*

kv Tinna

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5